Ég er að undirbúa spennandi verkefni fyrir mars og langar að leyfa fólki að fylgjast með í gegnum póstlista. Því langar mig til þess að fara af stað með aðventuleik með veglegum vinningum af vinnustofunni minni og mun draga úr þeim nöfnum sem skrá sig á póstlistann. Þann 20. desember dreg ég út eftirfarandi vinninga:
- 16 arkir af gjafapappír
- 1 x vegglímmiða í lit að eigin vali
- Púða í stærðinni 40 x 40 í lit að eigin vali
TIl þess að skrá sig á póstlistann og taka þar með þátt í leiknum klikkið hér
Hér eru svo tveir púðar sem eru til á vinnustofunni núna (ásamt fleirum), Álfhóll í blágrænu og Stuðlar í gulu og sandlitu.
Er sko búin að skrá mig, hlakka til að fylgjast með næstu ævintýrum hjá þér duglega kona 🙂
Gaman gaman – það er ýmislegt í farvatninu, þetta kemur hægt og rólega 🙂