Næstkomandi Laugardag á Listasafn Akureyrar tuttugu ára afmæli. Af því tilefni verða listamenn og hönnuðir með listamarkað í gilinu á Akureyrarvöku. Ég verð þar með úrval af púðum, gjafapappír, merkimiða og svo óvænta viðbót Sparikraga. Það er mín von að sem flestir láti sjá sig, gleðjist og njóti þeirra viðburða sem eru í boði í Listagilinu. Markaðurinn er opinn frá 13 -17, en dagskrána má nálgast hér.
Frá Handverkshátíðinni á Hrafnagili 2013